Vorum að koma til baka frá Moldoviu þar sem við vorum á mid-term seminar. Segi ykkur frá því seinna.
Bætti hins vegar við nýrri undirsíðu vinstra meginn: "On the Origins of the Traditions"
Sumir hérna halda að ég elski Armena og hati Azerbaijani, þeirra menningu og "traditions".
Á endanum ákvað ég að svara þeim í eitt skipti fyrir öll og úr varð þessi grein. Hún endurspeglar mína skoðun "universalt" en í henni eru nokkrar vísanir í Azerbaijan fyrir fólkið hérna.
Er búinn að prenta þetta út og einhverjir eru að lesa heima núna. Á eftir að prenta þetta út í nokkrum eintökum og mun láta þetta liggja frammi á skrifstofunni.
Annars átti ég að vera í brúðkaupi í gær, 24. júlí, hjá Anar, vini okkar sem sér um skrifstofuna.
Hann var búinn að taka lán í bankanum, panta allt og græja allt þegar einhver frænka einhvers deyr fyrir nokkrum vikum.
Þegar einhver deyr hérna þarf að "halda upp á það" samfleitt í 7 daga jarðarför, svo aftur 40 dögum seinna, og svo aftur 1 ári seinna!! Stundum er dauðinn mikilvægari en lífið...
Þá þurfti amma hans að gera upp við sig hvort það væri leyfilegt samkvæmt hefðunum (traditions) að halda brúðkaup svona skömmu eftir jarðarför. Niðurstaðan varð sú að brúðkaupið verður 24. ágúst næstkomandi. Brúðkaupin hérna eru víst alveg ægilegar veislur og hlakkar okkur mikið til að fá loksins að mæta í eitt slíkt (annars er maður var við þau út um allt hérna mörgum sinnum í viku; bílalest keyrir framhjá og flautað á fullu og keyrt glannalega og svo eru nokkrir "brúðkaupsstaðir" þar sem alltaf eru veislur). Annars erum við líka boðin í brúðkaup hjá Nazimir, vini okkar og reddara, en það verður líklega ekki fyrr en með haustinu.
En brúðkaup er ekkert grín hérna. Þá nótt (eða kvöld ef ekkert verður hamið!) munu brúðhjónin stunda kynlíf í fyrsta skiptið. Eða þannig á það að vera skv. "traditions". Allaveganna eru KK yfirleitt ekki hreinir sveinar fyrir brúðkaupsnóttina. KVK verða hins vegar að hafa meyjarhaft, annars er þeim bara skilað, takk fyrir pent. En oft hafa þær forvitnast aðeins án þess að hafa gengið alla leið. Einnig er hægt að "reconstructera" meyjarhaftið fyrir þær allra hörðustu.
Þetta á allaveganna við um fólkið sem er komið talsvert yfir tvítugt. Annars er algengt að fólk giftist mjög ungt, enda ekkert með það að gera að bíða endalaust...
Þetta samfélag er kynferðislega bælt og lítillega "sexually frustrated", þó að vissulega sé það langt frá því að vera eins slæmt og Arabalöndin og Íran.
Annars vil ég nota tækifærið og harma þessa hörmulegu stöðu sem komin er upp varðandi Timburmanna ríjúníon sem átti að vera á Kaldbakssteidíum núna um Mærudagana. Ég hef það eftir ónafngreindum kúrdískum uppljóstrara mínum að þar sé verið í óða önn að reisa hús sem hafi skilað sér í því að þar er nú með öllu óhægt að iðka þá göfgu íþrótt "bjórbolta". Og er því ríjúníoninu teflt í tvísýnu. Harma það ég mjög. Vona ég að málið fái farsæla lendingu sem ég mun og beita mér fyrir.
Annars vona ég að Húsvíkingar og nærsveitungar skemmti sér vel um Mærudagana og Timburmenn þar auðvitað í fararbroddi.
Hitakveðjur á Klakann
Azerben