MUN LÍKLEGA EKKI KOMA TIL MEÐ AÐ HAFA ÞOLINMÆÐI OG ÞRAUTSEGJU TIL AÐ HALDA ÞESSU BLOGGI LENGI ÚTI
Smá um mig
25 ára Húsvíkingur
03.02.2009 12:31:34 / bensig

Álver eða annað

Þá er skammtímastjórnin búin að gefa tóninn varðandi álversframkvæmdir. Vonum að sá falski tónn verði slípaður til eftir kosningar í apríl og haldið verði áfram að undirbúningi álvers á Bakka og það verkefni fái sambærilegan stuðning frá stjórnvöldum og Helguvíkurverkefnið hefur fengið.

Annars birti Indriði Þorláksson grein á vefsíðu sinni:  http://inhauth.blog.is/blog/inhauth/entry/792595/
um efnahagsleg áhrif stóriðju á Íslandi og verðmætasköpun fyrir þjóðina, eða öllu heldur skort á henni, samkvæmt hans takmörkuðu greiningu. Viss þjóðfélagshópur heldur ekki vatni yfir greininni og mærir hana í hvívetna, enda sjaldgæft að einhver úr þessum geira tali þeirra máli og um að gera að blása það út sem mest má.

Í athugasemdum við greinina er hún tætt í sundur og nokkuð ljóst að þessi vissi þjóðfélagshópur snýr blinda auganu að þeim athugasemdum sem þeim þóknast ekki.
Samkvæmt því er verðmætasköpun álveranna þriggja um 0,7% af landsframleiðslu.
Með svipuðum aðferðum má fá út að verðmætasköpun fiskveiða sé rösklega tvisvar sinnum meiri en þetta og sjávarútvegsins í heild e.t.v. um 4-5%.
Auk þess, til langs tíma litið, hefði fólk í áliðnaði fengið vinnu annars staðar. Þannig að við getum bara sleppt því að reikna með því hversu margir starfa í áli og greinum því tengdu. Þá getum við sagt það sama um sjávarútveg, netþjónabú og ferðaþjónustu. Fólk í þessum atvinnugreinum myndi bara fá vinnu annars staðar til lengri tíma litið og þess vegna þurfum við ekkert á þessu að halda!
En það það fer alveg framhjá sumum að þetta "annars staðar"/"annað" þarf að vera eitthvað!!!
Það má líka benda á að við lifum núna en ekki í einhverri óskilgreindri framtíð til lengri tíma litið. 

Sem sagt ef við hættum fiskveiðum þá dregst landsframleiðsla saman um e.t.v. 5%?!?!? Það meikar alveg sens er það ekki??
Hvílíkt endemis bull og kjaftæði.
Auk þess minnist hann ekkert á orkuöflun, framkvæmdir þeim tengdum og þess háttar. Álverin borga fyrir virkjanirnar, punktur. Eftir 40 ár eigum við eitt stykki Kárahnjúkavirkjun skuldlaust og getum selt orkuna í grasatínslu og -vinnslu ef menn vilja það frekar en álver, en sú "iðngrein" hefði aldrei getað staðið á bak við byggingu þeirrar virkjunar.

Jæja, nóg í bili.
Það er allaveganna nokkuð ljóst ða við lifum á spennandi tímum, hversu sársaukafullir sem þeir kunni að vera.


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 3515
Könnun
Er Ghengis Khan II besti leikur sögunnar eða hvað?