MUN LÍKLEGA EKKI KOMA TIL MEÐ AÐ HAFA ÞOLINMÆÐI OG ÞRAUTSEGJU TIL AÐ HALDA ÞESSU BLOGGI LENGI ÚTI
Smá um mig
25 ára Húsvíkingur
28.08.2008 21:46:58 / bensig

Varðhundur eigin prísundar

Jæja...

Það bar svo til um þessar mundir að föstudaginn 1. ágúst hófum vér sjálfboðaliðar í Mingachevir nýtt verkefni.

Í því felst að hvern föstudag nánast fram að áætlaðri heimför munum við, og höfum, sýnt eina kvikmynd fyrir hóp áhorfenda. Að henni lokinni ræðum við svo um kvikmyndina; hvaða spurningar vakna, hvernig megi heimfæra atburði myndarinnar á raunveruleikann, hvers vegna atburðarrásin er sú sem hún er og þ.h.

Myndirnar hafa hingað til allar verið á ensku og með enskum texta, nokkrar verða á öðru tungumáli en með enskum texta. Við höfum svo gert orðalista með útskýringum á ensku á erfiðustu orðunum sem fram koma í myndinni og afhent hópnum. Þannig er hópurinn í það minnsta að læra einhverja ensku.

En sem fyrr er það bara yfirskin. Myndirnar eru flestar til þess fallnar að opna augu áhorfandans fyrir því hvað er að gerast í kringum hann og hvetja hann til að taka þátt í því og færa til betri vegar, í það minnsta að vekja hann til umhugsunar. 
Höfum við 4 flokka meginviðfangsefna í gangi, 3 myndir í hverjum flokk og þegar þetta er ritað er fyrsti flokkur, sem fjallar um samfélagslega stöðu kvenna, búinn og næsti að hefjast.

Til þess að framkvæma þennan glæp, þetta tilræði við azerbaijanskt samfélag, höfðum við fengið leyfi fyrir því að nýta okkur aðstöðu IREX skrifstofunnar sem er niðri við ánna við hliðina á (og rekið samhliða) aðalbókasafninu. 
Þetta er skrifstofa með 5 tölvum, fríu interneti, sjónvarpi, DVD spilara, slatta af enskum bókum og tímaritum (National Geographic, Newsweek o.s.frv.) og ýmiskonar kort og upplýsingar hangandi á veggjunum.

Auðvitað var svona upplýsingaveita ekki fjármögnuð eða komið á koppinn af Azerum. Heldur var skrifstofan fjármögnuð af USA/PCV og rekin af þeim fram á síðastliðið vor. 
En nú er hún sem sagt rekin af Azerum, og það er ekkert spaug.

Myndin sem var sýnd þann 1. ágúst ber nafnið: "The Magdalene Sisters". 
Í þessari annars "siðprúðu" mynd er eitt nektaratriði. Þá standa stúlkurnar naktar frammi fyrir einni af yfirnunnunum og hún hæðist að þeim og niðurlægir, ekkert kynferðislegt þar á ferð.
Myndin er góð, kröftug (þó hún sé aðeins langdregin á köflum) og hópurinn var hugsi þegar hann fór heim á leið.

Við þetta má bæta að í byrjun myndarinnar er stúlku nauðgað. Margir viðstaddra hlógu og flissuðu (flestir viðstaddra voru kvenkyns) eins og þetta væri hið svæsnasta klám... 
Neinei, þetta samfélag á ekkert bágt, ekkert kynferðislega bælt né gjörsamlega óupplýst um kynferðisleg málefni...

Á meðan að á undirbúningi og jafnframt  sýningu myndarinnar stóð fór Elena nokrum sinnum út að reykja. Nokkrum sinnum atvikast það að einhverjar af yfirnunnun... ég meina yfirkerlingarbókasafnvörðunum, ef ekki sjálf Æðstakerling, fóru út og inn og horfðu þá illum augum á Elenu.

En svo það vildi þannig til að þegar nektaratriðið stóð sem hæst koma nokkrar af yfirnunnun... nei ég meina yfirkerlingarbókasafnvörðunum, ásamt Æðstukerlingu, inn og eiga ekki til orð.

Okkur er tilkynnt það að þarna verði ekki sýndar fleiri myndir vegna þess að við sýnum "vondar" myndir og Elena er "vond" (mjög líklega vændiskona í þeirra augum, og það er verra en allt sem vont er), en fáum þó að klára myndina, enda engin fleiri nektaratriði eftir; of seint að byrgja brunninn.

Við þeim varð ekki tjónkað.
En við vorum samt í vandræðum þar sem myndirnar sem við erum með eru Zone 1 (Norður Ameríka) en flestir spilarar hér eru Zone 2 (Evrópa and friends) nema spilarinn þeirra (og einstaka aðrir sem við fundum svo) sem spilar öll svæði...

En við fórum á þeirra fund til að freista þess að fá spilarann þeirra lánaðan og sýna myndirnar okkar í "verndaðra" umverfi, t.d. koma fyrir sjónvarpi á skirfstofunni okkar.

Nei, það var ekki hægt. Þó svo að Aliyev sjálfur hefði farið þess á leit við þær yrði þeim ekki haggað. Við sýndum þeim fram á (vorum með Lale, kennarann okkar með í för) að við værum ekki að breyta kvenfólkinu hérna í vændiskonur, eins og Elenu, heldur að reyna að opna augu stúlkananna, ein var meðal annars dóttir einnar þeirra, fyrir þeirri kúgun sem þær mega þola og láta yfir sig ganga í nafni hégóma, spéhræðslu og "traditions", þó fyrst og fremst þeirra eigin.

En auðvitað vildu kerlingarnar á bókasafninu ekkert annað en sama vesældóm og kúgun, og helst meiri, fyrir dætur sínar sem þær og mæður þeirra hafa mátt þola og standa svo fast vörð um. Það eru nefnilega þær, kerlingarnar hérna, sem eru einna viðkvæmastar og fastheldnastar á hina rætnu og rotnu  siði.

Ég rakkaði þær vitaskuld niður og lét þær heyra það.
En þær létu það ekki stoppa sig í því sem skiptir máli: Spurðu mig hvort ég væri ekki í giftingarhugleiðingum og hvort ég gæti ekki hugsað mér að giftast stúlku frá Azerbaijan. 
Ég hélt nú ekki. Það er svona svipað og að fara á hestvagni þegar maður gæti farið á bíl.
En ég get svo svarið það, það kom blik í augun á einni þeirra áður en ég náði að svara, og úr því mátti lesa tilhlökkun um að hugsanlega yrði einni kusu bætt í hjörðina jafnframt því sem að heimilið þyrfti ekki lengur að halda uppi einni dóttur...

Þær spurðu svo hvort okkur líkaði ekki við Azerbaijan og þá  sérstaklega Mingachevir. Lale svaraði hikstalaust fyrir okkur eitthvað á þessa leið: "ekki þegar fólkið hérna lætur svona", og sagði okkur svo hvað hefði farið þeim á milli.

Því má svo við bæta að núna þegar Mike, sem er sá PCV sem kom þessari skrifstofu á lappir, er að fara aftur til USA er hún auðvitað aldrei opin og allt í niðurníðslu, best að hún komi engum að gagni svo eymdin og aumingjadómurinn fái að grassera sem lengst...

En við redduðum þessu fyrir næstu mynd og sýnum núna myndirnar á skrifstofunni okkar.

Á morgun er það "City of God"

En nú er mál að þessu linni,
sæl að sinni,
Ólympíusilfurben



» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 3524
Könnun
Er Ghengis Khan II besti leikur sögunnar eða hvað?